top of page
Maður að sinna liggjandi manni.jpg

Velkomin í ferðalagið

Hér fylgja leiðbeiningar fyrir þig til þess að vera tilbúin/nn í öndunartíma, hvort sem hann er á staðnum eða í gegnum Zoom.

Öndunartími í sal

Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Þú færð búnað á staðnum sem er dýna, heyrnatól og púði undir höfuð. Sumir vilja koma með sína eigin dýnu og púða, jafnvel teppi og augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með vatnsbrúsa með sér. Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð í útöndun á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan. 
Öndun á gólfinu.jpg

Öndunartími í Zoom tíma

Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Það er mikilvægt að velja góðan stað til að liggja, hvort sem það er á dýnu á gólfi, í sófa eða rúmi og tryggja næði á meðan á öndun stendur. Það er hægt að sitja í hægindastól sem hægt er að halla bakinu. Þú notar þín eigin heyrnatól. Gott er að hafa púða undir höfuð og jafnvel undir fætur/hnésbót til að lyfta hnjám aðeins upp. Það getur verið gott að hafa teppi mörgum finnst gott að nota augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með vatnsbrúsa með sér.  Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð í útöndun á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan. 

Zoom tími ung kona.jpg

Ert þú að kljást við alvarleg veikindi eða nýlega komin/n úr aðgerð? Kíktu hér til að sjá hvaða atriði er gott að hafa í huga hvað það varðar.

bottom of page