top of page

Í hvaða tilvikum getur verið æskilegt að bíða með að fara í öndunartíma eða breyta öndunartækninni?

Lárétt KK anda með stuðning.jpg
Öndunartímar eru öruggir fyrir alla með þeim fyrirvara að í eftirfarandi tilvikum þá mælum við með að þú látir okkur vita og þá getum við leiðbeint þér með það hvort þú ættir að bíða með að fara í öndun eða að fara eingöngu í slakandi öndunartíma og nota öndunartækni sem notast ekki við munnöndun. 
  • Hjarta- og æðasjúkdómar

  • Of hár eða lágur blóðþrýstingur

  • Augnsjúkdómar eða nýleg augnaðgerð

  • Öndunarfæraerfiðleikar eins og astmi 

  • Flogaveiki eða saga um flog

  • Ólétta (kröftugir öndunartímar geta komið af stað hríðum)

  • Nýleg skurðaðgerð (innan 3ja mánaða)

  • Sykursýki (öndunartímar geta hreyft við blóðsykri)

  • Mikil inntaka af sterkum lyfjum eins og ópíóðum

  • Alvarleg greind geðræn röskun eins og Bi-polar

Við mælum alltaf með að fá ráðleggingar frá lækni ef þessi atriði eiga við. Í sumum tilvikum er þó óhætt að fara í slakandi öndunartíma og einnig eru sumir sem eru að takast á við eitthvað af ofangreindu sem hafa nýtt sér neföndun í stað munnöndunar í tímum sem kveikja á kerfinu og þannig haft stjórn á álaginu í takt við eigin getu. 
bottom of page