
Einstaklingstímar
Við bjóðum upp á einstaklingstíma sem bæði er hægt að fara í með hjálp 9D ® öndunartækni eða Transformational Breath ®. Hvorutveggja fer fram á stofunni okkar á Selfossi og hver tími er ýmist 2 klukkustutíma fyrir þá sem eru að koma í fyrsta tíma en 1,5 klukkutíma fyrir þá sem hafa komið áður í öndunartímar, svokallaðir endurkomutímar.
Einstaklingstímar eru mjög kröftugir tímar þar sem þú færð hámarks stuðning. Þú nýtur þess að vera í einrúmi og öryggi til þess að nýta einstaka eiginleika öndunarinnar til að vinna úr kerfinu þínu. Ávinningurinn þess að fara í öndunartíma er fjölþættur og má setja upp í eftifarandi þætti:
Líkamlega: Djúp þindöndun gerir súrefninu kleift að ná til frumna okkar og líffæra, sem eykur orku og hjálpar til við að afeitra og hreinsa líkamann.
Hugarfarslega og tilfinningalega: Öndunin hjálpar okkur að draga úr streitu og ýta undir tilfinningar um ró og frið.
Andlega: Full, meðvituð tengd öndun getur hjálpað okkur að tengjast okkar æðra sjálfi og nýtt meðfædda visku okkar.
Verð:
Einstaklingstími í 2 klst. 50.000.- kr
Endurkomutími í 1.5 klst. 39.000.- kr
Fyrir þá sem vilja bóka einstaklingstíma eða endurkomutíma er hægt að senda póst með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og við finnum tíma með þér.
