top of page
Maður að sinna liggjandi manni.jpg

Velkomin í ferðalagið

Hér fylgja leiðbeiningar fyrir þig til þess að vera tilbúin/nn í öndunartíma, hvort sem hann er á staðnum eða í gegnum Zoom.

Öndunartími í sal

  • Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Þú færð búnað á staðnum sem er dýna, heyrnatól, púði undir höfuð og teppi. Sumir vilja koma með sína eigin dýnu og púða, jafnvel teppi og augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með vatnsbrúsa með sér.
     
  • Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð í útöndun á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan. 
Öndun á gólfinu.jpg

Öndunartími í Zoom tíma

  • Þegar þú bókar Zoom tíma, þá færðu sendan hlekk á e-mailið þitt og það eina sem þú gerir er að smella á hlekkinn þegar tíminn byrjar. Þú þarft ekki að ná í forrit eða neitt slíkt - einfalt og gott. Þú getur verið í síma, spjaldtölvu eða tölvu og bestu hljómgæðin eru ef notast er við tölvu og snúrutengd heyrnatól. 

  • Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Það er mikilvægt að velja góðan stað til að liggja, hvort sem það er á dýnu á gólfi, í sófa eða rúmi og tryggja næði á meðan á öndun stendur. Það að er hægt að sitja í hægindastól sem hægt er að halla bakinu. Gott er að hafa púða undir höfuð og jafnvel undir fætur/hnésbót til að lyfta hnjám aðeins upp.
     

  • ​Gott næði og heyrnatól sem tengjast tækinu sem þú notar til að mæta í tímann eru líka lykilatriði til þess að finna til öryggis og njóta tímans til fulls. Við mælum með að hafa tækið sem þú notar sé stillt þannig að það séu ekki að koma skilaboð eða önnur truflun á meðan á tíma stendur.
     

  • Það getur verið gott að hafa teppi og jafnvel augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með tissjú við hendina og vatnsglas eða brúsa til þess að drekka vatn eftir að tímanum líkur.
     

  • Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð í útöndun á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan ef þörf er á. 

​Samantekt á helstu atriðum hér að ofan: 

  • Þægilegur fatnaður

  • Liggjandi eða í hægindastól

  • Gott næði

  • Heyrnatól 

  • Sími eða spjaldtölva á „silent“

  • Tissjú

  • Teppi

  • Vatn

  • Augngríma 

  • Púði undir fætur

  • Púði til að dempa hljóð

Zoom tími ung kona.jpg

Ert þú að kljást við alvarleg veikindi eða nýlega komin/n úr aðgerð? Kíktu hér til að sjá hvaða atriði er gott að hafa í huga hvað það varðar.

bottom of page