top of page

Í hvaða tilvikum getur verið æskilegt að bíða með að fara í öndunartíma eða breyta öndunartækninni?

Öndunartæknin er öflug og almennt örugg fyrir alla. Í mörgum tilvikum eru öndunartímarnir sérstaklega hannaðir til þess að kveikja á kerfinu okka á meðan aðrir hjálpa okkur að slaka á kerfinu. Sumir tímar gera hvoru tveggja.
Í sumum tilvikum er æskilegt að breyta öndunartækninni til þess að tryggja öryggi þitt og jafnvel ráðlagt að nýta slakandi öndundartíma frekar en þá sem eru gerðir til að kveikja á kerfinu okkar. Það getur verið æskilegt í einhverjum tilvikum að bíða með að fara „kveikjandi“ öndunartíma ef um alvarleg veikindi eða nýlegar aðgerðir er að ræða.
Ef eitthvað á listanum hér að neðan á við um þig, hvort sem það á við núna eða nýlega, þá biðjum við þig að hafa samband við okkur áður en þú skráir þig í tíma. Við bendum einnig á að þetta er ekki tæmandi listi.
-
Hjarta- og æðasjúkdómar
-
Of hár eða óvenjulegur blóðþrýstingur
-
Augnsjúkdómar eða nýleg augnaðgerð
-
Öndunarfæraerfiðleikar eins og astmi
-
Lungnasjúkdómar
-
Flogaveiki eða saga um flog
-
Ólétta
-
Nýleg skurðaðgerð (innan 3ja mánaða)
-
Sykursýki
-
Meðferð með sterkum lyfjum
-
Greind geðræn röskun eins og t.d. geðhvarfasýki
-
Heilablóðfall
bottom of page