
ENDURRÆSUM KERFIÐ
(Full System Reset)
Spennið öryggisbeltið og búið ykkur undir heildræna líkamsmeðferð. Full System Reset er sérhannað 9D öndunarferðalag til þess að losa það sem heldur aftur af okkur. Margir upplifa sig fasta og hreinlega uppgefna af óendanlegu álagi og streitu. Þetta ferðalag er eins og vin í eyðimörk fyrir alla sem tengja við það.
Þetta ferðalag er ekki bara að hjálpa okkur að losa um og finna frið heldur alhliða „kerfishreinsun“ sem frelsar þig úr klóm sálfræðilegs álags og líkamlegs óróleika sem heldur aftur af okkur í lífinu.
Ef þú ert að upplifa stöðnun, jafnvel eins og að vera fastur í fortíðinni, viðvarandi sjálfsgagnrýni eða tilfinningu um að vera ekki tengdur flæðinu í þínu lífi, þá er þetta rétta ferðalagið fyrir þig. Það er fyrir þá sem eru tilbúnir að hætta að „stjórna“ þreytunni og byrja að rífa upp með rótum gömlu forritunina sem veldur henni og ryðja brautina til að enduruppgötva sitt sanna og orkufyllsta sjálf.
