top of page
UMI yoga studio.jpg

ENDURRÆSUM KERFIÐ

(Full System Reset)

​

​Spennið öryggisbeltið og búið ykkur undir heildræna líkamsmeðferð. Full System Reset er sérhannað 9D öndunarferðalag til þess að losa það sem heldur aftur af okkur. Margir upplifa sig fasta og hreinlega uppgefna af óendanlegu álagi og streitu. Þetta ferðalag er eins og vin í eyðimörk fyrir alla sem tengja við það.

​

Þetta ferðalag er ekki bara að hjálpa okkur að losa um og finna frið heldur alhliða „kerfishreinsun“ sem frelsar þig úr klóm sálfræðilegs álags og líkamlegs óróleika sem heldur aftur af okkur í lífinu.

 

Ef þú ert að upplifa stöðnun, jafnvel eins og að vera fastur í fortíðinni, viðvarandi sjálfsgagnrýni eða tilfinningu um að vera ekki tengdur flæðinu í þínu lífi, þá er þetta rétta ferðalagið fyrir þig. Það er fyrir þá sem eru tilbúnir að hætta að „stjórna“ þreytunni og byrja að rífa upp með rótum gömlu forritunina sem veldur henni og ryðja brautina til að enduruppgötva sitt sanna og orkufyllsta sjálf.

Staðsetning:
Reykjavík
UMI studio
Austurströnd 1 Seltjarnarnes
Dagsetning: 5. desember
Tími: 11:00 - 13:00
Verð: 12.000 kr. 

Vegna mikillar eftirspurnar bendum við á að hægt er að afbóka tíma með 2ja sólahringa fyrirvara. Eftir þann tíma er ekki hægt að afbóka né færa tímabókun. 

Þú færð allt sem þú þarft á staðnum. Þér er engu að síður velkomið að koma með teppi og margir kjósa að vera með augngrímu. Við mælum líka með að hafa vatnsbrúsa meðferðis.

Þú getur smellt HÉR til að skoða enn betur hvað gott er að hafa í huga fyrir tímann. 

bottom of page