top of page
UMI yoga studio.jpg

Kynslóðaarfur
e. Blood memory

Þessi ferð er sérstaklega hönnuð til þess að uppræta óæskilegan kynslóðaarf. Hún er fyrir alla sem finna fyrir þyngslum, kvíða eða öðrum vandamálum sem erfitt er að finna orsökin fyrir. Hún er fyrir þá sem spyrja sig: „Af hverju er ég að bera ótta, reiði eða skortstilfinningu þegar ekkert í lífinu mínu styður það sérstaklega?“

 

Ef þig gruna að þú sért að bera einhverja tilfinningaleg skuld, undirliggjandi sorg eða lífsmynstur sem eru ekki frá þér komin, þá má oft finna orsökina í kynslóðaarfinum. Þetta öndunarferðalag vinnur með beinum hætti að því að uppræta þyngslin sem fylgja því að bera gömul sár og mynstur annarra. Það vinnur á öflugan hátt með sómatískum og sálfræðilegum hætti í að leggja loksins að baki það sem er ekki þitt að bera og þannig slíta keðjuna fyrir þig og komandi kynslóðir. 

​

​

Staðsetning:
Reykjavík
UMI studio
Austurströnd 1 Seltjarnarnes
Dagsetning: 31. október
Tími: 11:00 - 13:00
Verð: 12.000 kr. 

Vegna mikillar eftirspurnar bendum við á að hægt er að afbóka tíma með 2ja sólahringa fyrirvara. Eftir þann tíma er ekki hægt að afbóka né færa tímabókun. 

Þú færð allt sem þú þarft á staðnum. Þér er engu að síður velkomið að koma með teppi og margir kjósa að vera með augngrímu. Við mælum líka með að hafa vatnsbrúsa meðferðis.

Þú getur smellt HÉR til að skoða enn betur hvað gott er að hafa í huga fyrir tímann. 

bottom of page