

Byltingarkennd tækni
9 Víddir bjóða upp á öndunartækni sem heitir 9D BreathWork og er byltingarkennd öndunarmeðferð þar sem notast er við sómatíska nálgun og einstaka hljóðtækni sem hjálpar þér að ná enn dýpra inn í undirheim meðvitundarinnar.

Öndunartæknin sem 9 Víddir bjóða uppá byggir á 9D tækni sem sameinar forna tækni í tengslum við öndunaræfingar og nútíma tækni hljóðtækni og notast meðal annars við það sem kallast tvíheyrnataktur eða binaural beats á ensku.
Tæknin nýtir boð til undirmeðvitundarinnar og hjálpar við að endurforrita hana. Hluti af tækninni er að nýta raddbeitingu sem notuð eru við dáleiðslu og hjálpar okkur að komast í ástand þar sem við erum móttækilegri fyrir breytingum og mótun nýrra taugaboða.
Í 9D öndun eru líka mörg lög af sérstökum hljóðum og forritun undirmeðvitundarinnar.
Það er því óhætt að segja að öndunin sé margvíð.
Öndunartæknin hefur jákvæð áhrif varðandi streitu, þunglyndi og kvíða. Hún hjálpar okkur að fara dýpra í sjálfskoðuninni og vinna með ómeðvituð viðhorf, viðbrögð og innri sögur sem geta verið að halda aftur af okkur. Aðferðir hjálpar okkur að losa um tilfinningar og upplifa meiri kraft, gleði og þakklæti í lífinu.

Hóptímar - ZOOM tímar - Einstaklingstímar
Hvað hentar þér best? Þú getur komið í einstaklingstíma eða mætt í hóptíma sem við bjóðum upp á víða um landið og á netinu.
Hverjir eru kostirnir við að fara í öndunartíma?
Öndunartímar hjá 9 víddum hafa fjölþætt áhrif og upplifanir þátttakenda sýna að öndunartími getur snert á öllum sviðum lífsins, hvort sem það er sálræn líðan, hugarfarsleg endurforritu, líkamleg- eða andleg líðan.
Minni streita
Regluleg öndunaræfing lækkar streitustig verulega með því að virkja slökunarviðbrögð líkamans, sem hjálpar til við að draga úr áhrifum stöðugs bardaga- eða flótta ástands.
Tilfinningalegt jafnvægi
Með því að stuðla að ró og vellíðan hjálpa öndunaræfingar okkur að stjórna tilfinningum sínum á skilvirkari hátt, draga úr tilfellum viðbragðshegðunar og bæta samskipti í lífinu.
Aukinn fókus
Öndunaræfingar auka andlegan skýrleika og einbeitingu, sem gerir okkur kleift að framkvæma betur verkefni sem krefjast viðvarandi athygli.
Meiri orka
Sérstaklega markvissar öndunaræfingar hjálpa til við að auka súrefnisflæði til heilans og líkamans, endurnýja orkustig og draga úr þreytu.
Betri svefn
Regluleg öndunaræfing bætir svefngæði, leiðir til meiri endurnærandi hvíldar, sem aftur leiðir til mun meiri getu til gagnrýninnar hugsunar, bestu virkni og dýpri ánægju, bæði í vinnu og heima.
Aukin sköpunarkraftur
Með því að draga úr streitu og hreinsa hugann geta öndunaræfingar opnað nýjar leiðir fyrir skapandi hugsun, sem hugsanlega leitt til nýstárlegra lausna og hugmynda.
Seigla
Öndunarþjálfun veitir einstaklingum verkfæri til að takast á við álag í lífinu með meiri seiglu, draga úr áhrifum streitu og koma í veg fyrir kulnun.
Bætt heilsa
Öndunaræfingar styðja almenna heilsu með því að draga úr streitutengdum kvillum, svo sem háþrýstingi og langvinnum verkjum.

Í öruggum höndum
Það er mikilvægt og gott að finna öryggi þegar kemur að því að vinna með sálræna og líkamlega heilsu okkar.
Við þekkjum það vel af eigin raun hversu dýrmætt það er að ráðgjafar og leiðbeinendur hafi persónulega reynslu, menntun og þekkingu þegar kemur að slíkri vegferð.

Valdimar Þór Svavarsson
Öndunarþjálfi og ráðgjafi
Valdimar hefur starfað við ráðgjöf og meðferðarvinnu til margra ára. Hann er með háskólamenntun á sviði viðskipta og félagsráðgjafar, er með sérfræðimenntun í meðferðarvinnu vegna áfalla og hefur verið að nota og læra öndunartækni frá árinu 2022. Valdimar hefur um árabil starfað við ráðgjöf og meðferðarvinnu og er umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins.
Berglind Magnúsdóttir
Félagsráðgjafi, MA
Berglind er félagsráðgjafi, er með sérfræðimenntun í áfallameðferð og hefur lokið hæsta stigi af öndunarmenntun hjá Dr. Judith Kravitz sem kallast Transformational breath. Berglind hefur starfað við einstaklingsráðgjöf og meðferð í meira en áratug og hefur notað öndunartækni sem hluta af sinni meðferðarnálgun í mörg ár.
Í nokkrum undantekningatilvikum mælum við með að breyta öndunartækninni sem verið er að að nota eða jafnvel að bíða með að fara í öndunartíma. Smelltu á hnappinn hér að neðan ef þú telur að þú eigir við vanda að stríða sem gæti hindrað þig í að taka þátt.
"Til hvers að fara í öndunartíma,
eru ekki allir að anda?"
Fyrst þegar konan mín fór að læra ákveðna öndunartækni til að nota í meðferðarvinnu, þá fannst mér það skrítin hugmynd og hugsaði með mér „erum við ekki öll að anda?“
Ég fékk fljótlega að prófa tíma hjá henni og hefði aldrei geta trúað því hvað tíminn hafði mikil áhrif. Ég var búinn að vera í mörg ár að vinna úr langvinnum veikindum og útbrennslueinkennum sem fylgdu í kjölfarið, með öllum þeim leiðindareinkennum sem fylgja því. Gríðarlegar orkusveiflur og ójafnvægi í líðan var fylgifiskur sem ég fékk engar lausnir við, sama hvert ég leitaði. Um leið og ég fór í öndunartíma gerðist eitthvað nýtt og spennandi sem hefur haldið áfram að gerast og umbreyta lífi mínu. Um leið og ég kynntist 9D öndunartækninni þá fann ég að þar var komið tækifæri til að gefa fleirum tækifæri til að upplifa það sem ég hef gert.
Valdimar Þór Svavarsson

Ummæli nokkurra þátttakenda

„Hefðum aldrei trúað því hvað öndunin hefur mikil áhrif. Mælum 100% með.“
Stebba og Bjössi

„Eftir tímann svaf ég betur en ég hef gert í mörg ár“
Ása Hildur

„Ég var örugg allan tímann sem gaf mér rými til að fara í gegnum svo margt sem skipti mig miklu máli. Lífbreytandi tími“
Berglind Magnúsdóttir

„Magnað hvað Zoom öndunartími getur haft góð áhrif. Ég fann fyrir meiri kraft en líka meiri ró eftir tímann“
Guðni Þór
Tímar á næstunni

Selfoss
1. apríl
kl. 17:15
Hellismýri 14
Spenntu öryggisbeltið og vertu velkomin/n í þetta öndunarferðalag sem heitir
AÐ VAKNA UPP!
Ferðalagið hjálpar þér að fara yfir í fulla orku og innri tengsl á meðan þú afhjúpar það sem raunverulega býr í þér - kraftur, sjálfstraust og frelsi.
Flettu af þér lögunum, losaðu þig við hugmyndir sem hafa haldið aftur af þér. Þetta öndunarferðalag losar byrðar fortíðarinnar, kveður neikvæðni, sjálfsgagnrýni og fordóma, og gerir þér kleift að tengjast aftur við þitt sanna sjálf.

Reykjavík
Austurströnd 1
Seltjarnarnesi
Næsti tími
29. mars kl 17:00-19:00
Spenntu öryggisbeltið og vertu velkomin/n í þetta öndunarferðalag sem heitir
AÐ VAKNA UPP!
Ferðalagið hjálpar þér að fara yfir í fulla orku og innri tengsl á meðan þú afhjúpar það sem raunverulega býr í þér - kraftur, sjálfstraust og frelsi.
Flettu af þér lögunum, losaðu þig við hugmyndir sem hafa haldið aftur af þér. Þetta öndunarferðalag losar byrðar fortíðarinnar, kveður neikvæðni, sjálfsgagnrýni og fordóma, og gerir þér kleift að tengjast aftur við þitt sanna sjálf.

zoomtími
18. mars
kl. 8:10-8:45
Stutt innspýting fyrir daginn
Komdu þér þægilega fyrir og njóttu stundarinnar. Þetta stutta en kröftuga ferðalag heitir:
„Að vekja innri hetjuna“
Hefur þér liðið eins og þú sért að týna þér, að stundum séu kröfurnar bara of miklar eða að þú hafir aftengst kraftinum innra með þér? Þá er þetta ferðalag frábært tækifæri til að tengjast þinni innri visku, endurvekja kraftinn og uppgötva hver þú reynverulega ert.

Viltu smá sýnishorn?
Hlustaðu á stutt öndunarferðalag sem er hér fyrir neðan. Athugaðu að það er nauðsynlegt að hlusta með heyrnatólum til þess að njóta til fulls.

Vertu með okkur í ferðalaginu
Settu netfangið þitt hér fyrir neðan svo við getum sent þér skemmtilegar upplýsingar sem gætu vakið áhuga þinn.


